föstudagur, ágúst 31, 2007

Glæpamenn og Graffiti

Ok, svo litli ferðalangurinn heldur flakki sínu áfram og er nú mætt til Köben. Ég elska Köben. Það er bara endalaust eitthvað um að vera hér og allt eitthvað svo krúttulegt og frábært. Fyrir utan hvað maður er nú nærri heimaslóðum. Íslenska og Íslendingar á hverju horni. Pínu frábrugðið frá Lugano.

Í Sviss er allt hreint. Allt. Þar eru ekki sandkorn á strætunum og skordýr krossa helst ekki landamærin inn til Sviss. Hér í Danó bý ég í slömmi á Nörrebro. Þar er allt skítugt. Horaðir snítuklútar fjúka um göturnar og allskonar graffiti slagorð upp um alla veggi. Húsið mitt er miður fallegt á að líta, já og Hells Angels eru nágrannar mínir. Þeir eru hressir kappar.

En Norrebro er klárlega nýja trendí hverfið í köben svo burt séð frá skítnum og brjálæðingunum þá er ég allavega staðsett í hringiðu svala fólksins.

Fyrsta vikan hefur óneytanlega einkennst mestmegnis af djammi en svo er allt að fara í gang í næstu viku. Pínu flókið að átta sig á öllu skólastöffinu hér. Finna útúr byggingum, skammstöfunum, interneti og fleira....en kemur vonandi allt með kalda vatninu.

Sissú í köben hefur væntanlega misst Svissú statusinn. Hvað gera danir þá?

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Okey Sissú mín, þú ert ÆÐI..DJÓK !!!!!!!!!!
ÞÚ ERT LEIÐINLEG, VIÐ ÞOLUM ÞIG EKKI, ÞÚ ERT ALLTAF AÐ REYNA AÐ SKYGGJA Á OKKAR FRÆGÐ !!!!! :)

ANNARS erum við Sabbi hérna að reyna að tjá okkur eitthvað.... Og eg held ad við höfum bara staðið okkur nokkuð vel. Hamar seðjar og ístað. !

respect!

kv Sabz og Betz

Nafnlaus sagði...

HAHAHA! Lúðar :)

Nafnlaus sagði...

Ertu ekki að venjast íbúð og umhverfi Sissú mín?
Er þér alveg óhætt þarna á kvöldin ;)

Nafnlaus sagði...

ÉG vil blogg!! Og komment!!! Við áttum samkomulag Sissú?!?!

Ertu alveg búin að helga þig Facebook?.. því ég er ekkiaðfílaða nógu vel að þú sért hætt að blogga kona!

Bestu kveðjur frá Århus