þriðjudagur, janúar 23, 2007

Með annað augað opið.....

.....og hnífinn undir koddanum.

Ég fékk nýjan meðleigjanda um daginn. Hann er ítalskur.

Nýji ítalski meðleigjandinn minn tilkynnti mér ekki alls fyrir löngu að forðum daga hefði hann nú étið köngulær.
Eða eins og hann sagði sjálfur: " I ATE spiders!"

Þetta fannst mér afskaplega skrítið og heldur ógeðfellt.

Nokkrir dagar líða og gerast þá matmálsvenjur þessa drengs öllu grófari.
Talið berst að innflytjendum. Hann segir mér að innflytjendur séu síður en svo vinsælir á Ítalíu....en bætir svo hrillingnum við þegar hann segir að Ítalir almennt, hafi bara hreinlega étið þá! ÉTIÐ innflytjendurna!!

Neiiiii....hættu nú alveg!

Panik hugsanir fóru á ról. Ætli hann líti nokkuð á mig sem innflytjanda? Shit! Er þetta garnagaul sem ég heyri?! Kannski ég ætti að bjóða honum jógúrt.....
Þótt að á yfirborðinu væri ég að sjálfsögðu sallaróleg. Eins og ekkert í heiminum væri eðlilegra en að éta innflytendur.

Það vakti hjá mér örlitla von að þetta mannætutal hans var í þátíð, svo ég dró þá ályktun að þeir væru þá ef til vill hættir þessum ósiði í dag, bölvaðir.

Tók mig smá tíma að kveikja, en svo kom það.
Ítalir eiga sumsé í basli með H-in sín!

ATE, HATE.....grundvallar munur þar á, en ég er þó allavega farin að geta sofið á næturnar og hnífurinn kominn þangað sem hann á heima....í eldhússkúffuna.
HAHA

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hihihihi..... altaf gaman að búa með mannætu;) en hvernig gengur í prófunum..... ertu búin að vera dugleg að lesa?????

Sissú sagði...

Úfff...get nú ekki einusinni kommentað á þessi próf sko. Byrja ekki í upplestrarfríi fyrr en viku fyrir fyrsta próf, svo nei það hefur ekki gefist mikill tími til að lesa svo mikið sem staf.

Nafnlaus sagði...

haaaahaahahahahahahahahahahah
góður!! :D ...

Nafnlaus sagði...

Skemmtilegir þessir enskuerfiðleikar hjá úglendingum :)