sunnudagur, júní 10, 2007






Bara svo ég láti það nú líka fylgja sögunni, að þá er stríðinu lokið. Vinur minn hann herra Lurati viðurkenndi sig sigraðan og sá sig knúinn til að leyfa mér að sleppa bæði tölfræði og Corporate research methods! Sem er í rauninni meira en ég fór fram á en veitir mér engu að síður ómælda hamingju!

Annars er lítið að frétta. Leytinni að leigjanda heldur áfram og mjakar lítið áfram sem stressar mig pínu út. En helginni var eytt í eilítið partýstand og svo algjört afslappelsi í mínu ástkæra Lido. Afar huggulegt allt saman.

Verið að reyna að hrista af sér alla streytu fyrir lokasprettinn sem nálgast óðfluga.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vá geggjaðar myndir, það öfunda þig pottþétt allir sem skoða bloggið af því að vera þarna alveg sama þó að þú sért í prófum.

En segðu mér eitt Swissú, er þetta Tiger Woods með þér á myndinn?

Bkv

Bingó.

Nafnlaus sagði...

hehe...nei nei Billi Bingo. Enginn Tiger thar, bara Kitten. Kitten Woods.