föstudagur, febrúar 16, 2007

OHHHHH

Þá hefur mér tekist að týna lyklunum mínum. Lyklar að útidyrum, íbúð og póstkassa....farnir. Damn. Hélt að svona hegðun tilheyrði Sissú, ekki hinni endurbættu Swissú.
Oh jæja, hlaut að koma að því að ég færi að týna hlutum hér líka.

Nú þarf ég að drattast til skósmiðsins og fá nýtt sett. Verður fróðlegt að sjá hvernig það fer. Gef mér það að sá maður sé ekki slarkfær í enskunni þannig það er aldrei að vita hvað mun koma út úr þessum samskiptum okkar. Fátt sem kemur mér á óvart lengur. Bara spurning um hverskonar mistúlkun verði fyrir valinu að þessu sinni.

Get varla beðið.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þegar ég hitti þig panikkaru oftast yfir því að þú sért búin að týna lyklunum ..en þú finnur þá alltaf að lokum...en nei það kom að því að þú týndir þeim í alvöru ;)

Nafnlaus sagði...

Hahaha ég veit! Nú kom að því :)