föstudagur, júní 29, 2007

Swiss Alps part 9 Lugano

Jæja, er þá ekki kominn tími til að kynna fólk aðeins fyrir Lugano? Þegar ég kom hingað fyrst voru nú nokkrar vinaheimsóknir á dagskrá sem síðan allar duttu uppfyrir. Mjög svo sorglegt, en þið hafið ennþá séns næsta vor gott fólk! Ég fann þetta líka stórsniðuga myndband af Lugano á YouTube. Njótið vel lömbin mín

Nú, fyrir þá sem ekki nenna að eyða níu mínútum af lífi sínu í svona rugl, þá er hér örútgáfa sem var partur af verkefni "international tourism" stúdenta í USI

sunnudagur, júní 10, 2007






Bara svo ég láti það nú líka fylgja sögunni, að þá er stríðinu lokið. Vinur minn hann herra Lurati viðurkenndi sig sigraðan og sá sig knúinn til að leyfa mér að sleppa bæði tölfræði og Corporate research methods! Sem er í rauninni meira en ég fór fram á en veitir mér engu að síður ómælda hamingju!

Annars er lítið að frétta. Leytinni að leigjanda heldur áfram og mjakar lítið áfram sem stressar mig pínu út. En helginni var eytt í eilítið partýstand og svo algjört afslappelsi í mínu ástkæra Lido. Afar huggulegt allt saman.

Verið að reyna að hrista af sér alla streytu fyrir lokasprettinn sem nálgast óðfluga.

miðvikudagur, maí 30, 2007

Sjitt, bara þrjár vikur eftir af skólanum áður en upplestarfríið dembist yfir mann. Próftaflan mín þessa önnina lýtur svona út:

3. júlí: Corporate identity and image
4. júlí: Integrated marketing communication
9. júlí: Consumer behavior
9. júlí: Issues and Crisis management

Jújú, þeir státa sig af því að skella tveimur prófum á mann sama dag hér í Sviss. Ljómandi!

13. júlí: Public Affairs
16. júlí: Investor relations
18. júlí: Sponsoring and event management

Og svo verður bara flogið heim í Íslensku veðurblíðuna þann 26. júlí.

Annars er það helst í fréttum að SFzwei heldur áfram að bæta við glæsta næntís dagskrá sína. Hver man ekki eftir Quantum Leap og Murder she wrote? Nýjasta viðbótin í safnið... Twin Peaks! Sissú tíu ára, föstudagskvöld, prins og kók og Laura is missing! Those were the days. Táslurnar mínar eru í ruglinu og virðast bara ekkert ætla að jafna sig eftir þá hryllilegu meðferð sem eigandinn lét ganga yfir þær í fluffunni seinasta sumar. Þarf sko að hafa fótakonur á standby á leifstöð þegar ég lendi. Og síðast en ekki síst,Lido er opnað.

Annars stend ég í útistöðum hér við mann og annan þessa dagana í þrálátri baráttu fyrir "hagsmunum" mínum. Nýji andstæðingurinn er herra Lurati nokkur, sem er skorarformaður hér. Búin að eyða ófáum mínútunum í að reyna að sannfæra þann mann um að ég þurfi ekki að taka tölfræðikúrsinn hér á fjórðu önn. En ekkert fær honum bifað. Seinasta vopnið mitt var hádramatískt bréf sem ég var viku að semja og lesa yfir, bæta við, lesa aftur yfir, endurskoða, endurorða, stroka út og bæta við. Ætlaði sko að hafa rökin alveg á hreinu og áheyrslurnar á réttum stöðum. Ég á eftir að fá svar, en ef hann gefur sig ekki bölvaður, þá þýðir það ég mun þurfa að eisa þetta helv. tölfræðipróf þegar að því kemur, eftir allt þetta tal mitt um hversu fáránlega mikill tölfræðisnillingur ég sé!
Hefði kannski ekkert átt að vera að velta þessum steini......eheheehe.

En fyrst ég er byrjuð á þessu rugli þá verð ég víst að fylgja því eftir og ef ég tapa stríðinu, þá verður það einu prófi fleira sem ég þarf að lesa fyrir uppá eigin spítur yfir næstu jól. Fórnarkostnaður skiptinemans, en klárlega þess virði. Sýnist á öllu að önnurhver manneskja verði fjarverandi hér á næstu önn. Holland, Kína, Spánn, USA, Danmörk... Einhvert skiptinemaæði að grípa um sig. En mín yndisfagra Kaupmannahöfn bíður mín í ágúst með tívolí, strikið, smörrebröd og vonandi bara allan pakkann!

fimmtudagur, maí 24, 2007

Þá er þetta á jaðri hins óbærilega. Hitinn hér farinn uppúr öllu valdi.

föstudagur, maí 11, 2007

Ég er hætt að fylgjast með þessu krappi sem kallast Eurovision.

þriðjudagur, maí 08, 2007

Dolce Gusto



Hér í heimi ítölskumælandi fólks er kaffi stórmál. Kaffi er ekki bara kaffi, kaffi er lífstíll og kaffi er sko ekkert grín.
Innfæddir hafa lagt sig fram við að ala litla ódannaða Íslendinga kvikindið upp í kaffidrykkjunni og er nú svo komið að ég hef staðið sjálfa mig að því að skella í mig eins og nokkrum espresso skotum, svona þegar vel liggur á mér. Það held ég að sé lokaskrefið í kaffiþróuninni. Byrjar með óbeit á kaffi, sniglast svo rólega yfir í 50/50 kaffi og kakó eða mokka kaffi (ég festist á þessu stigi um árabil), síðan er það ef til vill kaffi latté eða cappuchino, nú væntanlega venjulegt kaffikönnukaffi næst (ég hoppaði yfir þetta stig) og svo að lokum rífandi sterkt espresso!

Og þar er ég stödd í dag!

Held þetta sé bara félasþrýstingur. Cappuchino er sko mitt kaffi en fólk hérna er bara alveg sjúkt í espresso. Þú ert ekki kúl ef þú færð þér cappuchino. Í morgunmat OK, en eftir hádegi....ekki láta þig dreyma um það. Mér var tilkynnt það að ég færi til helvítis ef ég drykki cappuchino eftir hádegi. Svo alvarlegt er málið. Það er víst ætlað með morgunmat og þannig er það nú bara. Reglur eru reglur og lög eru lög.

Svo að ég sé mig knúna til að stunda þessa andfélagslegu hegðun innan veggja heimilisins og drekka þar mitt cappuchino þar sem enginn sér til mín....klukkan átta á kvöldin! hah! Rebel.

Er að reyna að sötra þetta pakkadrasl sem maður kaupir í búðunum og blandar í vatn, en sé núna að allt pakka kaffi heyrir fortíðinni til. Gekk kannski á meðan ég var enn ung og vitlaus en er nú klárlega orðin allt of siðmenntuð kaffidrykkju manneskja til að láta bjóða mér svoleiðis sull (eða "dirty water" eins og ítalir kalla allt kaffi sem selt er utan landamæra Ítalíu...Ítalski hluti Sviss kannski rétt sleppur).

Og þar kemur Dolce Gusto til sögunnar! Kaffivél drauma minna, sem býr til kaffihúsa cappuchino, macciato, café latté og espresso á örskotstundu!

Ég var sko alveg búnað plana þetta þegar ég fatta að þessi vél og sérútbúna kaffið í hana, fæst ekki á íslandi, svo hún verður ekki nothæf þar.

Svo nú þarf ég að gera upp hug minn.....
Kaffi eða Ísland?

Ég er bara hreinlega ekki viss.

föstudagur, apríl 27, 2007

sunnudagur, apríl 22, 2007

Skil ekki afhverju ég er hætt að geta kommentað á kommentin.
Pínu leiðinlegt.

Annars virðist líka sem ógurleg kommentfælni sé að ná tökum á fólki.

þriðjudagur, apríl 17, 2007

Ítalía er æði

Þá er familían horfin á braut og ég dottin oní skólann á ný, eftir svaka fína daga á Ítalíu. Ég fékk meira segja óvæntan leynigest með í för og hélt ég væri að sjá ofsjónir þegar fallegasta englabarnið hann Friðrik Máni gekk út úr lyftunni. Aldeilis skemmtilega óvænt það :)
Svo var bara fullt prógramm allan tímann, farið í Gardaland og Movieland, skroppið til Feneyja, Veróna og Mílanó og keyrt hringinn í kringum Gardavatn.

Nú eru allir skápar hjá mér fullir af íslensku stashi. Hangikjöt, flatkökur, harðfiskur, Malt, rúgbrauð, piparostur, silungur, smjörvi o.s.frv. Ljómandi gott bara.



Flottastur


Feneyjar



Gardaland



Dómkirkjan í Mílanó



Fallega fólkið


fimmtudagur, apríl 05, 2007

Good times




Ég og snillingarnir Vick og Xian áttum góðan dag í dag í algjöru afslappelsi eftir seinustu kennslustundina fyrir páska. Fengum smá innsýn inn í sumardagana sem bíða okkar. Ítalskur ís, belgískur bjór, hjólabátar, pálmatré og túristar....

Ég kvarta ekki.













GLEÐILEGA PÁSKA!

Ég er farin í frí á Lake Garda!



þriðjudagur, apríl 03, 2007

Jesúsminnalmáttugurgóðurguð. Meðleigjandinn er að gera út af við mig með afgerandi ósmekklegu tónlistarvali sínu. Það er Eros Ramasotti í bland við ítalskar rokkballöður og gott ef ég heyrði ekki í Two unlimited og Dj. Ötzi líka. Já og Ace of Base. Má ekki gleyma Ace of Base. Svo syngur hann líka svona ljómandi hressilega með öllum uppáhalds slögurunum sínum. Algjör eðall. Það þarf einhver að hýfa drenginn inn í nýjan áratug.

Annars gerði ég mér aldrei grein fyrir hversu mörg "íslensku" jólalaganna eru sprottin frá ítölskum dægurlögum. Eða eru beinlínis ítölsk dægurlög sem búið er að sletta íslenskum jólatexta við.
Ooog svo borða ítalir líka laufabrauð með flórsykri, sem er karnival maturinn þeirra.

Svo það er óhætt að segja að hér séu jól alla daga.

Lítið að frétta annars. Er búin að sitja á intensífu námskeiði núna í fjóra daga, þar sem kennari í Sponsoring and Event management dúndrar í okkur fróðleik. Klár kall sem kemur frá Eurosport sjónvarpsstöðinni og segir okkur hinar ýmsu bransasögur í bland við þeoríurnar. Mjög áhugavert alltsaman. Ég meirasegja stillti inn á Eurosport í gærkveldi og horfði þar á tennis! Í 20 mínútur! Horfi annars aldrei á íþróttir. En þar sem Roger Federer er nú þjóðarhetja hér og allir í Sviss virðast spila tennis og horfa á tennis og tala um tennis þá verður maður nú eiginlega að setja sig aðeins inn í þetta. Var ekki jafn slæmt og ég bjóst við. Jafnvel bara ágætlega skemmtilegt. Serena Williams missti kúlið og tapaði. Veit ekki fyrir hverri. Enda fóru kraftar mínir aðallega í það að pæla í sponsorunum sem sáust á skjánum.

Ekki frá því nema ég sé bara orðin spennt fyrir ólympíuleikunum líka!

Svo datt ég inní Ancherman í sjónvarpinu hér ekki alls fyrir löngu, sem ég held að verði fyndnari í hvert skipti sem ég sé hana. Nema hvað að í ljósi þess hversu gegnumsýrð ég er, þessa dagana, af Eurosport og öllu sem tengist þeim heimi, þá fannst mér þetta atriði fáránlega hlægilegt. Datt í hug að deila gleðinni með ykkur.

laugardagur, mars 31, 2007

Lægð

Ég er eitthvað svo agalega framtakslaus og innímér þessa dagana. Langar mest til að slökkva á símanum, logga mig út af msn, leggjast undir sæng og borða kökudeig í öll mál.
Vera bara alein og möglulega ekki yrða á neinn eins lengi og ég kemst upp með það.

Kannski páskarnir bjargi mér upp úr þessu fönki og grafi upp hressleikan sem mig rámar í að sé þarna einhversstaðar undir niðri.

fimmtudagur, mars 29, 2007

Þessi tími ársins...eina ferðina enn.

Mér fannst við hæfi að kynna mér framlag þeirra Svisslendinga í Eurovision þetta árið, þar sem að maður er nú svona semi-swissari þessa dagana. Sko, nú er ég ekki mikill aðdáandi rauðhærða power-rokkarans, en Sviss...ææææ. Ég veit ekki hvað skal segja. Óður til vampíranna settur í svona hressandi næntís danssmella búning. Hvað finnst ykkur? Ætlar Sviss að taka þetta í ár?

en þessi er alveg eðal. Svíarnir sko. Þeir klikka ekki :)

sunnudagur, mars 25, 2007

Annar í páskum!



Björk í Laugardalshöll!

Og ég verð einhversstaðar á Ítalíu að væflast. Öfunda ykkur klakafólk að hafa tækifæri til að kíkja í höllina. Ætla nú samt ekki að kvarta of mikið þar sem ég mun vera að sleikja sólina á
Gardavatni og liggja þar í leti og vellystingum alla páskana.
Blasta bara Björkina á Poddaranum í staðinn og iða svo í skinninu eftir útgáfu Volta í maí.

laugardagur, mars 24, 2007

miðvikudagur, mars 21, 2007

Ferskt blóð

Það er fátt skemmtilegra en að kynna sig fyrir nýju fólki hér.
Ég fæ alltaf jafn innilega "ég er svo hissa" viðbrögð. Eins og Ísland væri það seinasta í veröldinni sem fólk hefði búist við að heyra. Ég gæti sagst vera frá Atlantis og ég fengi ekki jafn sterk viðbrögð.

Eftir miður skemmtilega reynslu mína af hópavinnu síðustu annar, þar sem á tímabili virtist sem önnur hver manneskja væri alveg vel trufluð á geði og óeðlilega tæp á taugum, ákvað ég að þessi mistök skildi ég ekki endurtaka á nýrri önn. Ég ýki nú kannski smá. Þetta var bara einn hópur sem var í ruglinu. Hinir voru fínir. En ég er semsagt búin að koma mér rækilega fyrir í nýjum og huggulegum hópum með nýju og huggulegu fólki. Engin öskur, engin frekju eða dramaköst, enginn með mikilmennskubrjálæði rekandi aðra hópameðlimi heim til sín og enginn að beita kúgunaraðferðum með hótunum um að segja sig úr hópnum.......uuuummm eða ekki ennþá allavega, eehehe. Sjáum til eftir tólf vikur af stanslausri samveru undir stanslausu álagi, hvernig staðan verður þá.

En maður lifir og lærir. Það kom líka berlega í ljós núna þegar þetta hópa prósess fór í gang á ný að sumir áttu í heldur meira basli skulum við segja, með að finna sér hóp, heldur en aðrir. Snýst bara um að vera næs. Engin rocket science að verki hér.
What comes around goes around, er það ekki alltaf þannig?

laugardagur, mars 17, 2007

Cherry blossoms



Hef ég eitthvað minnst á það hvað ég elska veðurfarið hér?

Mmmm....vor. Loving it!

miðvikudagur, mars 14, 2007

Family Guy - Best of Stewie

Stewie Griffin...gotta love him :)